Innskráning í Karellen
news

Agalota hefst ❤️

22. 08. 2021

Mánudaginn 23. ágúst, hefst fyrsta lotan í Kynjanámskránni eða agalotan.

  • Agalotan er fyrsta stig félagsþjálfunar og fer fram í ágúst-september.
  • Lykilhugtök lotunnar eru:
    • Virðing
    • Hegðun
    • Kurteisi
    • Framkoma
  • Uppskeruvikan er framkomuvika.
  • R-reglurnar eru í hávegum hafðar í Hjallastefnustarfi; röð, regla og rútína í fyrirrúmi á öllum sviðum.
  • Kjarnað umhverfi alls staðar, allir hlutir merktir, umferðarreglur merktar og sýnilegt og áþreifanlegt hvernig allt á að vera. Þaulhugsuð dagskrá og einfaldleiki í öllu skipulagi er jafnmikilvægt og umhverfiskjörnunin.
  • Í kjarnastarfinu er síðan áherslan á skarpa nemendastjórnun með nákvæmri eftirfylgd og hegðunarreglum sem börnin taka þátt í að móta, kynna og endurskoða. Þjálfun í kurteisi og mannasiðum, æfing í að heilsast og kveðjast, borðsiðir og umgengni um fataklefa eru raunveruleikatengd verkefni í þessari lotu.
  • Framkomuhæfni í kynjablöndun þarf að æfa sérstaklega.
  • Munum að æfa okkur líka því árangur barnanna ræðst af þeim aga sem við náum að sýna, til dæmis varðandi frágang, kyrrlátar raðir milli staða, stundvísi o.fl.

Samkvæmt hugmyndum Hjallastefnunnar snýst hugtakið agi einfaldlega um að temja hinn guðdómlega vilja. Hegðunarkennsla er þjálfun í framkomu og samskiptum.


© 2016 - Karellen